Það má búast við íslensku sumarveðri á 17. júní hátíðarhöldum Félags Íslendinga í Lúxemborg sem verður laugardaginn kemur, 15. júní, í beim Maartbech, Berdorf (sami staður og undanfarin ár).
Hátíðarhöldin byrja kl. 14:00.
Til sölu verða íslenskar Bæjarins Bestu pylsur, íslenskt sælgæti, kaffi og kökur.
Aldís Gunnarsdóttir kemur í heimsókn og les úr bókinni sinni Trölli Litli og skilnaður foreldra hans. https://luxarar.is/barnabokin-xxx/
Munið að við erum ekki með posa fyrir kreditkortum.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn FÍL