Félagsaðild veitir afslátt á viðburði félagsins. Með þinni áskrift styrkir þú félagsstarf Íslendinga í Lúxemborg og gerir félaginu kleift að halda a.m.k. föstu viðburðina. Styrkur þinn til félagsins er mjög mikilvægur. Samfélag Íslendinga í Lúxemborg á sér langa sögu og hefur verið öflugt. Það er einhugur um að halda í þessa föstu viðburði og með þínum stuðningi gæti verið möguleiki á fleiri viðburðum.
Starfsár félagsins er frá apríl til apríl, ár hvert. Félagsgjald ársins 2024 eru 40€ fyrir einstakling og 80€ fyrir fjölskyldu. Gjalddagi er 1. apríl.
Til að gerast félagsmaður fyllir þú út formið hér að neðan og í framhaldinu af því skal leggja inn á eftirfarandi bankareikning: BGL LU 62 0030 0379 1724 0000.
Vinsamlegast settu nafn greiðanda í „communication au bénéficiare“. Viljir þú vera lengur en ár í félaginu hvetjum við þig til að setja greiðsluna í fasta greiðslu „ordre permanent“ í heimabankanum.