
Þorrablótt 2026 verður haldið í Mensdorf eins og síðast liðin ár, laugardaginn 7. febrúar næstkomandi.
Veislustjórar, gleðigjafar og söngvarar eru Hjörleifur Hjartarson (einn af Hundum í óskilum) og eiginkona hans Íris Ólöf Sigurjónsdóttir.
Verð: 90 Eur fyrir félagsmenn
65 Eur fyrir 25 ára og yngri
115 Eur fyrir alla aðra
Eftir forsölu hækkar miðaverðið um 5 Eur fyrir alla ofangreinda, hvort sem greitt er með millifærslu eða við inngang. Forsala og borðpöntunum lýkur á miðnætti 3. febrúar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Bestu kveðjur, stjórn FÍL